Tvær heimasíður

 

Með hreinar og frábærar vörur

 

http://www.urtasmidjan.is

http://www.purityherbs.is

http://www.villimey.is/

http://www.yndisseidur.is/


Kaffi Sæla

http://kaffi.westfjords.com/

 

2892_74435901020_74057336020_2115205_7575413_n

Ég mæli með að allir komi við á Tálknafirði í sumar og fái sér eitthvað í svanginn á þessu nýja kaffihúsi

 

 


Njótið helgarinnar

 
Gleðilega páska
 
 
easter_craft_main

Ný heimasíða

Ný heimasíða Hjá Veitingastaðnum Við Pollinn

 

http://vidpollinn.is

 

strakarnir


Hentugur

 

 

  493564.jpg                                                                  

 

 

 

 

 

Ég væri til í að eiga svona bíl sem bíl nr 2


mbl.is Heimsins ódýrasti bíll í sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmsir Maskar

Fengnir héðan og þaðan  

MASKI SEM JAFNAR HÚÐLIT

Safi úr 1/2 úr ferskri sítrónu
1 eggjahvíta þeytt

Berðu á andlit fyrir svefn eða í 15 mínútur sem beauty maski sem frískar upp á húðina. Fjarlagið með volgu vatni.

Maskinn hjálpar við að lýsa húðina því sítrónan virkar eins og lýsingarefni.


 MASKI SEM MINNKAR BAUGA

Raspaðu niður eina hráa kartöflu. Settu raspið af kartöflunni í grisju og látið liggja á augnlokum í 15 - 20 mínútur. Fjarlagið

með volgu vatni og berið á augnkrem í kringum augun.
 

Heimatilbúnir maskarnokkrar hugmyndir af heimatilbúnum andlitsmöskum.  Það er nefnilega einfalt að útbúa sér góða en næringarríka andlitsmaska heimavið :)

 Hrein jógúrt- góð fyrir þurra/normal húð, mýkir og gefur raka 

Ab mjólk- góð fyrir blandaða/feita húð, rakagefandi 

Haframjöl- Létt hreinsandi henntar fyrir allar húðgerðir en síst þurra húð (þá í litlu mæli) 

Lyftiduft- hreinsandi, dregur úr fituframleiðslu, gott fyrir blandaða/feita húð 

Banani- mýkjandi, nærandi góður fyrir normal/þurra húð 

Sítróna- lýsandi, jafnar húðlit 

Eggjahvíta- Stinnandi, gott fyrir húð sem er farin að eldast.  Þá er eggjahvítan þeytt og borin á andlitið.

 Fyrir augun 

Kartafla- lýsir húð, minnkar þrota.  Gott að skera í þunnar sneiðar með t.d. ostaskera og leggja yfir augun.  Eða rífa niður með rifjárni og setja í grisju yfir augun. Gúrka- kælandi, dregur úr þrota.  Gott að skera í þunnar sneiðar með t.d. ostaskera og leggja yfir augun. Nú er bara að blanda saman fyrir sína húðgerð og setja á hreint andlit í 15-20 mínútur.  A.t.h. best er að setja maskana yfir grisju (hægt að fá í apótekum) þannig er hreinlegast að taka þá af andlitinu. 

Nokkrar uppskriftir Feit húð

1) Penslið undanrennu á andlitið, nuddið henni inn í húðina og látið þorna.  Skolið af með volgu vatni.  Undanrennan hreinsar olíugljá og fitu vel.

2) Ab mjólk sett í skál, teskeið af lyftidufti bætt út í, haframjöli bætt út í og blandað saman.  Borið á andlitið og látið bíða í 10-15 mínútur.

3) Maukaðir tómatar, kartöflumjöli bætt út í og jafnvel örlitlu af lyftidufti.  Borið á húðina og látið bíða í 15-20 mínútur, þvegið af með volgu vatni.

Normal/blönduð húð

Blandið saman einu eggi, 1/2 bolla haframjöli og teskeið af ólífuolíu.  Blandið saman þar til mjúktBorið á andlit og látið bíða í 10-15 mínútur.

Blönduð húð

6 rósablöð, 2 matarskeiðar rósavatn, 1 matarskeið hrein jógúrt (eða ab mjólk), 1 matarskeið fljótandi hunang.  Bleytið rósarblöðin, setjið þau í skál og maukið þau, blandið saman við rósarvatni, jógúrtinu og hunanginu.  Borið á húð og látið liggja á í 10-15 mínútur.  Hreinsað af með volgu vatni.

Þurr húð

1) Blandið saman einni eggjarauðu, einni teskeið hunangi og teskeið af ólífuolíu (einnig gott að setja E-vítamínolíu út í ef þú átt hana).  Þegar blandan er orðin mjúk og fín þá berið hana á andlitið og látið liggja á  í 10-15 mínútur.  Hreinsið af með volgu vatni og þerrið yfir húðina.  Fyrir mjög þurra húð er gott að setja örlítið af ólífuolíu eða annari góðri olíu út í blönduna.2) Eggjarauða, olífuolía, hunang (velgja), sýrður rjómi, avocado.  Eggjarauða handþeytt, ólífuolíu, sýrðum rjóma og hunangi bætt út í.  Avocadoið maukað og bætt út í blönduna.  Borið á andlitið og látið bíða í 10-15 mínútur.  Hreinsað af með volgu vatni3) 1/2 avocado, 1/4 bolli hunang.  Avocado maukað og hunangi blandað saman við, látið bíða á húð í 5-10 mínútur.  Hreinsað af með volgu vatni

Viðkvæm húð

1 bolli hrein náttúruleg jógúrt (þó í lagi venjuleg), best að hafa hana beint úr ísskápnum, 1/2 bolli haframjöl.  Blandið saman og berið á húðina.  Látið bíða í 15 mínútur.  Hreinsið af með volgu vatni.  Hægt er að nota þennan maska fyrir aðrar húðgerðir en þá er blandað fleirum efnum saman við, t.d. fyrir feita húð er bætt út í lime safa, fyrir þurra húð, teskeið af hunangi.

Eldri húð/húð sem er að eldast

3 matarskeiðar sykur, 4 teskeiðar heitt vatn.  Látið sykurinn bráðna vel í vatninu, og passið vel upp á að hann sé alveg bráðnaður áður en borið er á húðina.  Annars gætu sykurkornin sært húðina.  Borið á húðina, nuddað létt yfir og látið bíða í 5 mínútur.  Hreinsað af með volgu vatni.  

Hvernig fara konur í öðrum löndum að því að líta vel út?

Búa þær yfir leyndarmálum sem við þekkjum ekki? Í hverju landi er að finna konur sem nota frumlegar og stundum ævafornar leiðir til að hressa upp á útlitið!

Japan: Japanskar konur borða mjög næringarríkan mat og álíta að það hjálpi þeim mest við að líta vel út. Á matseðlinum hjá þeim eru aðallega hrísgrjón, sojabaunir og sjávarfang. Einnig baða þær sig oft í heitum hverum til að mýkja húðina.
 

Grikkland: Grískar konur nota sand í staðinn fyrir kornakrem til að fríska upp á húðina og fjarlægja dauðar húðfrumur. Þær byrja á að bera olíu á húðina, strjúka síðan sandi yfir og baða sig síðan í sjónum. Loks bera þær á sig sólvarnarkrem því húðin er sérstaklega viðkvæm fyrir sólinni á eftir. Þær mæla líka með Body Exfoliating Gel frá Shiseido. 

Suður-Ameríka: Ótrúlegt en satt... Suðuramerískar konur nota avókadó ávöxtinn til að næra hárið og gefa því glans. Þær pressa safann úr vel þroskuðum ávexti, nudda honum síðan í hársvörðinn, láta hann virka í klukkutíma og þvo því næst úr með venjulegu sjampói. Avókadó olía getur gert sama gagn.

Kína: Hunang, mjólk og eggjahvíta geta komið að góðum notum í annað en matreiðslu. Kínverskar konur blanda þessu þrennu saman í andlitsmaska sem hefur reynst vel gegn bólum og hrukkum. Einnig er þekkt að konur noti hrísgrjónaedik sem andlitsvatn eða út í baðið.

Filippseyjar: Kókosolía á heiðurinn að því hversu glansandi og fallegt hár filippeyskra kvenna er og hvað húð þeirra er björt og fersk. Gott er að bera volga kókosolíu í hárið og láta hana vera í 20 mínútur áður en hún er skoluð úr. 

Spánn: Ólífuolía gerir ekki aðeins gagn í eldhúsinu. Hana er líka gott að nota til að styrkja neglurnar. Spænskar senjórítur blanda volgri ólífuolíu og sítrónusafa saman og nudda vel inn í neglurnar til að veita þeim raka og mýkt. Ólífuolíuna nota þær einnig til að næra hárið og gefa því glans. Þær láta olíuna vera í hárinu í 20 mínútur og þvo hana síðan úr með sápu. Að lokum luma þær á leyndarmáli sem við getum vel nýtt okkur. Þær nota sjávarsalt til að fríska upp á húðina. Þær setja handfylli af salti út í baðvatnið, bæta við nokkrum dropum af ilmolíu og baðið verður fullkomið.
 

Brasilía: Þar mæla konur með jojobaolíu fyrir húð og hár, helst náttúrulegri en ef hún fæst ekki er hægt að nota t.d. Éclat du Jour frá Clarins.  Matarsódi á tennurnar  Það eina sem þú þarft er matarsódi og tannbursti. Svo er bara að bursta tennurnar upp úr matarsódanum þegar þér finnst tími kominn á það. Sjálf hef ég lesið um þetta trikk á hinum og þessum vefsíðum og sé að það er ekki bara þessi vinkona hennar Gunnu sem notar trikkið heldur hellingur af ameríkönum.
Matarsóda má reyndar líka nota í að hvíta ýmislegt annað, til dæmis til a hreinsa vaska og allskonar leirtau og svo hefur hann víst reynst vel gegn blöðrubólgu og brjóstsviða. Semsagt, mikið undralyf.

Þetta fann ég á netinu um notkun matarsóda á tennur:

"Cut down on dentist teeth cleaning costs. Clean your teeth with Baking Soda. Works really well with a rotary toothbrush. Go gently at the gumline as baking soda is abrasive. I just used it again a couple of days ago and there is no longer any tartar build up! I only do this at most 3 times a year"

Svo ef þú vilt spara þér 20.000 kallinn sem tannlæknirinn tekur fyrir að hvíta í þér tennurnar, spanderaðu þá 200 kalli á dós af matarsóda og gerðu tilraun í kvöld.
 

Matarsódaskrúbbur fyrir andlitið

Hráefni:
·         Þrír hlutar af matarsóda á móti einum hluta af vatni.

Aðferð:·         Hrærið matarsódann og vatnið saman.·         Nudduð andlitið  með hringlaga hareyfingum.·         Þvoið af með volgu vatni.

         

Hunangsskrúbbur fyrir andlitiðHráefni:·         2 möndlur·         1 tsk sítrónusafi·         1 tsk hunang.

Aðferð:·         Merjið möndlurnar í duft.·         Blandið saman við safann og hunangið.·         Berið á andlitið með hringlaga hreyfinum.·         Þvoið af með vatni.
 

HafrahreinsimaskiHráefni:·         2-3 msk hafrar·         Hunang·         1/4 tsk eplaedik·         1 dropi basil ilmkjarnaolía (má sleppa)

Aðferð:·         Merjið hafrana.·         Bætið hunangi og eplaedik saman við.·         Bætið meiru hunangi við ef þarf.·         Bætið ilmkjarnaolíunni út í.·         Setjið mixtúruna á  og látið liggja á í 15 mínútur.·         Þvoið af með volgu vatni.
 

Bananamaski fyrir þurra húðHráefni:·         1 eggjarauða ·         2 msk sweet almond olía eða önnur olía ·         1 banani

Aðferð:·         Öllu blandað saman.·         Borið á andlitið og látið liggja á í 20 mínútur.·         Þvoið af með volgu vatni.
 

Gulrótarmaski

Hráefni:·         2 - 3 lstórar gulrætur ·         4 ½  msk hunang

Aðferð:·         Sjóið gulræturnar og maukið.·         Blandið hunanginu saman við.·         Berið á andlitið og látið liggja á í  10 mínútur.·         Hreinsið af með volgu vatni.
 

Haframaski fyrir feita húð

Hráefni:·         3 msk hafrar·         2 msk kalt vatn

Aðferð:·         Blandið höfrunum og vatninu saman.·         Berið á andlitið og látið liggja á í 5 mínútur.·         Hreinsið af með volgu vatni

Hreinsandi sykurskrúbbur

Hráefni:
·         1 msk sykur ·         1 msk hrein jógúrt ·         1/4 tsk hunang

Aðferð:·         Blandið hráefnunum saman.·         Berið á andlitið og látið liggja á í 10 mínútur.·         Hreinsið af með með volgu vatni.·         Hæft að nota maskann x3 í viku.
 

Sykurskrúbbur

Hráefni
·         1 bolli sykur eða púðursykur ·         ¼ bolli grunnolía   ·         ½ tsk E-vítamín olía    ·         6 - 8 dropar lavender ilmkjarnaolía   Aðferð:·         Blandið öllum hráefnunum saman.·         Berið á andlitið og hreinsið af með volgu vatni.·         Uppskriftin dugir í eina krukku.
 

Saltskrúbbur

Hráefni
·         Salt ·         HunangAðferð:·         blandið hráefnunum saman.·         Berið á andlitið og hreinsið af með volgu vatni.

Andlitsolía fyrir illa farna húð

Andlitsolía fyrir viðkvæma og veðurbitna húð

Hráefni:

·         5 dropar german chamomile ilmkjarnaolía ·         5 dropar calendula ilmkjarnaolía ·         5 dropar helichrysum ilmkjarnaolía ·         5 dropar lavender ilmkjarnaolía ·         1 msk jojoba olía ·         1 msk macademía olía ·         2 tsk sólblómaolía

Aðferð:·         Blandið ilmkjarnaolíunum saman. ·         Blandið grunnolíunum saman við. ·         Hristið vel saman. ·         Látið standa á dimmum stað í 24 klst áður en olían er notuð. ·         Notist innan sex mánuða. ·         Berið 3-5 dropa á andlitið x2 á dag. ·         Hentar vel fyrir illa farna húð, veðurbarna, mjög þurra og viðkvæma

Góðir maskar fyrir venjulega og þurra húð.

Hunangsmaski:
·         1/2 tsk rósarvatn (fæst í Jurtaapótekinu) ·         1 tsk hunangBlandað saman og borið á andlitið og látið vera í 15-20 mínútur.
Hreinsið af með volgu vatni.

Ávaxtamaski:
·         1 banani ·         1 papaya ·         1 acocadoAllt marið saman og látið vera á húðini í 20 mínútur.
Hreinsað af með volgu vatni.
Berið góða olíu á eftir.

Avacadomaski:
·         1/2 avacado ·         sítrónusafiAvacado marið og nokkrum dropum af sítrónusafa blandað saman við.
Borið á andlitið og látið liggja á í 20 mínútur.

Gott að bera hnetuolíu eða olífuolía á andlitið, nudda henni inn í húðina.

Þurr húð og eldhúsráðin

Hreinsikem:
·         1 eggjarauða ·         1 tsk appelsínusafi (nýkreist) ·         1 tsk olífuolía Nokkrir dropar af limesafa (nýkreist)   ·         Sett á húðina 15 mínútum áður en þú ferð í bað eða sturtu um morguninn.

Maski:·         1 egg  ·         1 tsk hunang  ·         1/2 tsk olífuolía  ·         Látið liggja á húðinni í 10-15 mínútur, hreinsið af með vatni.

Maskar fyrir venjulega og þurra húð.

Jógúrtmaski:

Hráefni:
·         1 msk jógúrt við stofuhita·         1 msk hunang, hitað.
Aðferð
·         Blandað saman og látið liggja á andlitinu í 15 mínútur. ·         Fyrir mjög þurra húð má bæta við annari matskeið af hunangi. ·         Fyrir feita húð er hægt að setja safa úr lime í blönduna 

Hunangsmaski:·         Best að setja maskann á blauta húð. ·         Tekur klút og bleytir hann með volgu vatni og þvær andlitinu upp úr honum. ·         Síðan er hunang borið á andlitið og látið liggja á í 15-20 mínútur.·         Þvoið síðan andlitið með volgu vatni og síðan með köldu til að loka svitaholunum. 

Bananamaski:·         Stappaðu 1/4 af bananan þar til hann er orðinn að mjúku kremi. ·         Borið á andlitið og látið liggja á í 15 mínútur.·         Þvoið af með volgu vatni og síðan með köldu. 

Avacado og gulrótarmaski:

Hráefni:
·         1 avacadó·         1 gulrót·         1/2 bolli rjómi·         1 hrært egg·         3 msk hunang

Aðferð:·         Avacadóið stappað, gulrótin soðin og stöppuð.·         Blandað saman og borið á andlitið og háls og látið liggja á í 10 mínútur.

Andlitsmaskar úr eldhúsinu.

Grænn maski:
·         jógúrt og grænt te blandað saman.·         

Hreinsandi maski sem er settur á húðinsa og nuddað með hringlaga hreyfingum inn í húðin. ·         Látið liggja á í nokkrar mínúrur og hreinsið með vatni.·         Hentar vel fyrir viðkvæma og pirraða húð.

Hunangsmaski:·         Hunang og malaðar möndlur og örlítil olía saman við.·         Nærandi maski fyrir venjulega og þurra húð.

Mintumaski:·         Jógúrt og smátt söxuð mintublöð.·         Kælandi og róandi fyrir húðina.·         Hentar sérstaklega vel fyrir viðkvæma húð

Basilmaski:·         Jógúrt og smátt saxað basil.·         Róandi fyrir húðina.                    

Fótanuddkrem

Hráefni:

  • 1 1/2 tsk kókosolía
  • 2 msk hafrar
  • 2 msk sweet almond olía
  • 1 tsk blandað krydd úr kryddhillunni
  • eða 10 dropar ilmkjarnaolía eftir smekk, t.d. lavendur, jasmine, rose, patchouli eða ylang -ylang.
Aðferð:
  • Öllu blandað saman í mauk.
  • Nuddið yfir fætur og látið liggja á í 20 mínútur.
  • Hreinsið af
Mýkjandi krem, sem er gott fyrir þreytta fætur.Húsráð við harðri húð á fótum

Fótaskrúbbur

Hráefni:
  • Heitt vatn
  • 2 msk matarsódi
  • 1/4 bolli ólífuolía eða laxerolía
  • 2 msk epla edik
Aðferð:
  • Setjið matarsódann í heitt vatn og hafið fæturnar í 15 mínútur.
  • Þurrkið fæturnar og nuddið með blöndu af ólífuolíu og eplaedik
  • Setjið sokka á fæturnar og sofið í þeim yfir nótt.
Gott fyrir harða húð á hælum.Hörð húð á hælum er hættulaust ástand en óþæginleg. Til ef fullt af ágætum kremum við þessu, en svo er líka einfalt að kíkja í skápana og sjá hvað maður á til þar.
  • Góða ólífuolia er hægt að bera á fæturnar eftir bað og sofa í sokkum yfir nótt.
  • Maukaðir velþroskaðir bananar settir á húðina og látnir liggja á í 10 mínútur, hreinsið af.
  • Fótabað í sítrónusafa í 10 mínútur.
  • Daglegt fótabað í 15 mínútur í lok dagsins, þurrkið fætur og berið á blöndu af einni teskeið af vaselíni í safa af einni sítrónu.
Gúrkuvatn fyrir þurrar hendur

Hráefni:
  • 1 lítil gúrka
  • 1/2 tsk hunang
  • heitt vatn
  • mild sápa t.d. neutrogena
  • 1 msk maísmjöl
Aðferð:
  • Afhýðið gúrkuna og fræhreinsið.
  • Sett í blandara og blandið hunangi saman við, sett í sérskál.
  • Búið til mauk úr vatni, sápu og maísmjöli.
Notkun:
  • Þvoðið hendurnar vandlega með maísmaukinu.
  • Skolið hendurnar upp úr volgu vatni.
  • Setjið gúrkusafann á rakar hendur og setjið plasthanska eða plastpoka á hendurnar.
  • Setjið handklæði yfir plastið og látið vera í ca 30 mínútur.
  • Hreinsið og þurrkið hendurnar og setjið handáburð á hendurnar.

Gott fyrir mjög þurra, veðurbarða og illa farna húð, má nota á hverjum degi 1-2 yfir daginn í nokkrar vikur. Ef ekki er hægt að koma því við þá allavega 3-4 yfir vikuna.

Þurrar hendur og eldhúsráðin

Olífuolíobað:
Fyllið skál af volgu vatni og setjið 4 msk af olífuolíu í vatnið.
Hafið hendurnar í vatninu í 10-15 mínútur.
Hreinsið hendurna með vatni og þurrkið.Berið handáburð á hendurnar.
Hægt að nota þetta fyrir fætur líka.

Vaselín fyrir nóttina:
Berið vaselín, AD-krem á hendurnar  og sofið með þunna bómullahanska. Það sama er hægt að gera fyrir fætur og sofa þá í sokkum

.Aloe vera:
Fyrir þá sem eiga aloe vera plöntuna, er hægt að skera af jurtinni og nudda húðina með vökvanum úr plöntuninni

Olíur fyrir hendur:

Nuddið hnétuolíu eða kókosolíu á hendurnar og látið þorna.

Hunang fyrir hendurnar:

Bleytið hendurnar og hristið vatnið af en þurrkið ekki. Hunang borið á og látið liggja á í  5 mínútur. Hreinsið af með vatni og þurrkið.

Sykur og laxerolía:
Setjið eina teskeið af sykri í lófana og bætið við nokkrum dropnum af laxerolíu og sítrónusafa og nuddið hendurnar vel. Hreinsið með volgu vatni og þurrkið.

Haframaski fyrir hendur:
1/4 bolli hafrar, 1 msk vatn og eplaedik, hrært saman svo úr verði mauk og borið á hendurnar. Látið liggja á í 10 mínútur og hreinsið af með volgu vatni.
 


ýmislegt

 sem ég hef verið að gera að undanförnu

heklað teppi

 

 

 

 

 Heklað teppi

 

 

 

 

 

 

 

 

húfa og trefill

 

 

 

 

 

 

 

 Húfa og vettlingar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

2 þæfðar skálar

 

 

 

 

 

 

 2 þæfðar skálar

 

 

 

 

 

 

2 litlar kassa húfur

 

 

 

 

 

 

 

 litlar kassa húfur

 

 

 

 

 

þæfðir vetlingar, stórir og barna-bíflugna

 

 

 

 

 

 

 

 þæfðir vettlingar

stórir og svo barna-býflugna

 

 

 

 

 

 

 


prjónuð leikföng ofl.

http://mochimochiland.com/shop/

Hér eru meðal annars þessi

Tubby

Which Came First?RainycloudNinjabunMochimochi ElvesGodfrey

 

http://www.designs-by-emily.com/dlg/cart/free.php

þvottapokar


nafn mitt

Fanny Margret 

 

í Rúnaletri

http://www.sunnyway.com/runes/write_in_runes.html

 

 á Arabísku 

فني مارجريت

http://www.google.com/transliterate/arabic

 


Prjón ofl - uppskriftir

 

http://www.purlbee.com/ 

er rosalega flott og sniðug heimasíða, þar er margt að finna m.a. eftirfarandi

 

http://www.purlbee.com/mary-jane-slippers/       Rosalega fínar tátiljur

http://www.purlbee.com/wedding-washcloths/     einfaldir þvottapokar

http://www.purlbee.com/mollys-star-ornaments/       Skraut stjörnur

http://www.purlbee.com/apple-picking-tote/         Hin fínasta taska

 

Ég set svo fljótlega inn myndir af því sem ég hef verið að gera að undanförnu Smile

 

 


Gleðileg jól, njótið lífsins og farið vel með ykkur.

gleðileg jól

jóla jóla

jólasraut leikur 2008 frá Lindu jólasraut leikur 2008 frá Lindu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

ég var að fá pakka úr jóla-skrauta-skipta-leik allt í kross

ég fékk mína fallegu gjöf frá Lindu, takk kærlega fyrir mig.

 

ég get ekki strax sett inn mynd af því sem að ég gerði, ég veit ekki hvort að það er komið til skila :o)

 

 

 

 

jólasveinninn loks kominn í ramma

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En ég var að ramma inn mynd sem ég gerði fyrir þó nokkru.

 

 

 

 

 

 

Baka baka og bara 9 daga til jóla


11

11 dagar

 

n39728931605_4539.jpg


Jól

Eftir

 

 

 

20 Daga

 

ChristmasPuppy


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband