Færsluflokkur: Lífstíll
16.5.2009 | 13:29
Tvær heimasíður
Með hreinar og frábærar vörur
Lífstíll | Breytt 18.5.2009 kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2009 | 13:09
Kaffi Sæla
Ég mæli með að allir komi við á Tálknafirði í sumar og fái sér eitthvað í svanginn á þessu nýja kaffihúsi
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2009 | 19:18
Ný heimasíða
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2009 | 20:52
Hentugur
Ég væri til í að eiga svona bíl sem bíl nr 2
|
Heimsins ódýrasti bíll í sölu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.3.2009 | 14:51
Ýmsir Maskar
Fengnir héðan og þaðan
MASKI SEM JAFNAR HÚÐLIT
Safi úr 1/2 úr ferskri sítrónu
1 eggjahvíta þeytt
Berðu á andlit fyrir svefn eða í 15 mínútur sem beauty maski sem frískar upp á húðina. Fjarlagið með volgu vatni.
Maskinn hjálpar við að lýsa húðina því sítrónan virkar eins og lýsingarefni.
MASKI SEM MINNKAR BAUGA
Raspaðu niður eina hráa kartöflu. Settu raspið af kartöflunni í grisju og látið liggja á augnlokum í 15 - 20 mínútur. Fjarlagið
með volgu vatni og berið á augnkrem í kringum augun.
Heimatilbúnir maskarnokkrar hugmyndir af heimatilbúnum andlitsmöskum. Það er nefnilega einfalt að útbúa sér góða en næringarríka andlitsmaska heimavið :)
Hrein jógúrt- góð fyrir þurra/normal húð, mýkir og gefur raka
Ab mjólk- góð fyrir blandaða/feita húð, rakagefandi
Haframjöl- Létt hreinsandi henntar fyrir allar húðgerðir en síst þurra húð (þá í litlu mæli)
Lyftiduft- hreinsandi, dregur úr fituframleiðslu, gott fyrir blandaða/feita húð
Banani- mýkjandi, nærandi góður fyrir normal/þurra húð
Sítróna- lýsandi, jafnar húðlit
Eggjahvíta- Stinnandi, gott fyrir húð sem er farin að eldast. Þá er eggjahvítan þeytt og borin á andlitið.
Fyrir augun
Kartafla- lýsir húð, minnkar þrota. Gott að skera í þunnar sneiðar með t.d. ostaskera og leggja yfir augun. Eða rífa niður með rifjárni og setja í grisju yfir augun. Gúrka- kælandi, dregur úr þrota. Gott að skera í þunnar sneiðar með t.d. ostaskera og leggja yfir augun. Nú er bara að blanda saman fyrir sína húðgerð og setja á hreint andlit í 15-20 mínútur. A.t.h. best er að setja maskana yfir grisju (hægt að fá í apótekum) þannig er hreinlegast að taka þá af andlitinu.
Nokkrar uppskriftir Feit húð
1) Penslið undanrennu á andlitið, nuddið henni inn í húðina og látið þorna. Skolið af með volgu vatni. Undanrennan hreinsar olíugljá og fitu vel.
2) Ab mjólk sett í skál, teskeið af lyftidufti bætt út í, haframjöli bætt út í og blandað saman. Borið á andlitið og látið bíða í 10-15 mínútur.
3) Maukaðir tómatar, kartöflumjöli bætt út í og jafnvel örlitlu af lyftidufti. Borið á húðina og látið bíða í 15-20 mínútur, þvegið af með volgu vatni.
Normal/blönduð húð
Blandið saman einu eggi, 1/2 bolla haframjöli og teskeið af ólífuolíu. Blandið saman þar til mjúkt. Borið á andlit og látið bíða í 10-15 mínútur.
Blönduð húð
6 rósablöð, 2 matarskeiðar rósavatn, 1 matarskeið hrein jógúrt (eða ab mjólk), 1 matarskeið fljótandi hunang. Bleytið rósarblöðin, setjið þau í skál og maukið þau, blandið saman við rósarvatni, jógúrtinu og hunanginu. Borið á húð og látið liggja á í 10-15 mínútur. Hreinsað af með volgu vatni.
Þurr húð
1) Blandið saman einni eggjarauðu, einni teskeið hunangi og teskeið af ólífuolíu (einnig gott að setja E-vítamínolíu út í ef þú átt hana). Þegar blandan er orðin mjúk og fín þá berið hana á andlitið og látið liggja á í 10-15 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni og þerrið yfir húðina. Fyrir mjög þurra húð er gott að setja örlítið af ólífuolíu eða annari góðri olíu út í blönduna.2) Eggjarauða, olífuolía, hunang (velgja), sýrður rjómi, avocado. Eggjarauða handþeytt, ólífuolíu, sýrðum rjóma og hunangi bætt út í. Avocadoið maukað og bætt út í blönduna. Borið á andlitið og látið bíða í 10-15 mínútur. Hreinsað af með volgu vatni3) 1/2 avocado, 1/4 bolli hunang. Avocado maukað og hunangi blandað saman við, látið bíða á húð í 5-10 mínútur. Hreinsað af með volgu vatni
Viðkvæm húð
1 bolli hrein náttúruleg jógúrt (þó í lagi venjuleg), best að hafa hana beint úr ísskápnum, 1/2 bolli haframjöl. Blandið saman og berið á húðina. Látið bíða í 15 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni. Hægt er að nota þennan maska fyrir aðrar húðgerðir en þá er blandað fleirum efnum saman við, t.d. fyrir feita húð er bætt út í lime safa, fyrir þurra húð, teskeið af hunangi.
Eldri húð/húð sem er að eldast
3 matarskeiðar sykur, 4 teskeiðar heitt vatn. Látið sykurinn bráðna vel í vatninu, og passið vel upp á að hann sé alveg bráðnaður áður en borið er á húðina. Annars gætu sykurkornin sært húðina. Borið á húðina, nuddað létt yfir og látið bíða í 5 mínútur. Hreinsað af með volgu vatni.
Hvernig fara konur í öðrum löndum að því að líta vel út?
Búa þær yfir leyndarmálum sem við þekkjum ekki? Í hverju landi er að finna konur sem nota frumlegar og stundum ævafornar leiðir til að hressa upp á útlitið!
Japan: Japanskar konur borða mjög næringarríkan mat og álíta að það hjálpi þeim mest við að líta vel út. Á matseðlinum hjá þeim eru aðallega hrísgrjón, sojabaunir og sjávarfang. Einnig baða þær sig oft í heitum hverum til að mýkja húðina.
Grikkland: Grískar konur nota sand í staðinn fyrir kornakrem til að fríska upp á húðina og fjarlægja dauðar húðfrumur. Þær byrja á að bera olíu á húðina, strjúka síðan sandi yfir og baða sig síðan í sjónum. Loks bera þær á sig sólvarnarkrem því húðin er sérstaklega viðkvæm fyrir sólinni á eftir. Þær mæla líka með Body Exfoliating Gel frá Shiseido.
Suður-Ameríka: Ótrúlegt en satt... Suðuramerískar konur nota avókadó ávöxtinn til að næra hárið og gefa því glans. Þær pressa safann úr vel þroskuðum ávexti, nudda honum síðan í hársvörðinn, láta hann virka í klukkutíma og þvo því næst úr með venjulegu sjampói. Avókadó olía getur gert sama gagn.
Kína: Hunang, mjólk og eggjahvíta geta komið að góðum notum í annað en matreiðslu. Kínverskar konur blanda þessu þrennu saman í andlitsmaska sem hefur reynst vel gegn bólum og hrukkum. Einnig er þekkt að konur noti hrísgrjónaedik sem andlitsvatn eða út í baðið.
Filippseyjar: Kókosolía á heiðurinn að því hversu glansandi og fallegt hár filippeyskra kvenna er og hvað húð þeirra er björt og fersk. Gott er að bera volga kókosolíu í hárið og láta hana vera í 20 mínútur áður en hún er skoluð úr.
Spánn: Ólífuolía gerir ekki aðeins gagn í eldhúsinu. Hana er líka gott að nota til að styrkja neglurnar. Spænskar senjórítur blanda volgri ólífuolíu og sítrónusafa saman og nudda vel inn í neglurnar til að veita þeim raka og mýkt. Ólífuolíuna nota þær einnig til að næra hárið og gefa því glans. Þær láta olíuna vera í hárinu í 20 mínútur og þvo hana síðan úr með sápu. Að lokum luma þær á leyndarmáli sem við getum vel nýtt okkur. Þær nota sjávarsalt til að fríska upp á húðina. Þær setja handfylli af salti út í baðvatnið, bæta við nokkrum dropum af ilmolíu og baðið verður fullkomið.
Brasilía: Þar mæla konur með jojobaolíu fyrir húð og hár, helst náttúrulegri en ef hún fæst ekki er hægt að nota t.d. Éclat du Jour frá Clarins. Matarsódi á tennurnar Það eina sem þú þarft er matarsódi og tannbursti. Svo er bara að bursta tennurnar upp úr matarsódanum þegar þér finnst tími kominn á það. Sjálf hef ég lesið um þetta trikk á hinum og þessum vefsíðum og sé að það er ekki bara þessi vinkona hennar Gunnu sem notar trikkið heldur hellingur af ameríkönum.
Matarsóda má reyndar líka nota í að hvíta ýmislegt annað, til dæmis til a hreinsa vaska og allskonar leirtau og svo hefur hann víst reynst vel gegn blöðrubólgu og brjóstsviða. Semsagt, mikið undralyf.
Þetta fann ég á netinu um notkun matarsóda á tennur:
"Cut down on dentist teeth cleaning costs. Clean your teeth with Baking Soda. Works really well with a rotary toothbrush. Go gently at the gumline as baking soda is abrasive. I just used it again a couple of days ago and there is no longer any tartar build up! I only do this at most 3 times a year"
Svo ef þú vilt spara þér 20.000 kallinn sem tannlæknirinn tekur fyrir að hvíta í þér tennurnar, spanderaðu þá 200 kalli á dós af matarsóda og gerðu tilraun í kvöld.
Matarsódaskrúbbur fyrir andlitið
Hráefni:· Þrír hlutar af matarsóda á móti einum hluta af vatni.
Aðferð:· Hrærið matarsódann og vatnið saman.· Nudduð andlitið með hringlaga hareyfingum.· Þvoið af með volgu vatni.
Hunangsskrúbbur fyrir andlitiðHráefni:· 2 möndlur· 1 tsk sítrónusafi· 1 tsk hunang.
Aðferð:· Merjið möndlurnar í duft.· Blandið saman við safann og hunangið.· Berið á andlitið með hringlaga hreyfinum.· Þvoið af með vatni.
HafrahreinsimaskiHráefni:· 2-3 msk hafrar· Hunang· 1/4 tsk eplaedik· 1 dropi basil ilmkjarnaolía (má sleppa)
Aðferð:· Merjið hafrana.· Bætið hunangi og eplaedik saman við.· Bætið meiru hunangi við ef þarf.· Bætið ilmkjarnaolíunni út í.· Setjið mixtúruna á og látið liggja á í 15 mínútur.· Þvoið af með volgu vatni.
Bananamaski fyrir þurra húðHráefni:· 1 eggjarauða · 2 msk sweet almond olía eða önnur olía · 1 banani
Aðferð:· Öllu blandað saman.· Borið á andlitið og látið liggja á í 20 mínútur.· Þvoið af með volgu vatni.
Gulrótarmaski
Hráefni:· 2 - 3 lstórar gulrætur · 4 ½ msk hunang
Aðferð:· Sjóið gulræturnar og maukið.· Blandið hunanginu saman við.· Berið á andlitið og látið liggja á í 10 mínútur.· Hreinsið af með volgu vatni.
Haframaski fyrir feita húð
Hráefni:· 3 msk hafrar· 2 msk kalt vatn
Aðferð:· Blandið höfrunum og vatninu saman.· Berið á andlitið og látið liggja á í 5 mínútur.· Hreinsið af með volgu vatni
Hreinsandi sykurskrúbbur
Hráefni: · 1 msk sykur · 1 msk hrein jógúrt · 1/4 tsk hunang
Aðferð:· Blandið hráefnunum saman.· Berið á andlitið og látið liggja á í 10 mínútur.· Hreinsið af með með volgu vatni.· Hæft að nota maskann x3 í viku.
Sykurskrúbbur
Hráefni· 1 bolli sykur eða púðursykur · ¼ bolli grunnolía · ½ tsk E-vítamín olía · 6 - 8 dropar lavender ilmkjarnaolía Aðferð:· Blandið öllum hráefnunum saman.· Berið á andlitið og hreinsið af með volgu vatni.· Uppskriftin dugir í eina krukku.
Saltskrúbbur
Hráefni· Salt · HunangAðferð:· blandið hráefnunum saman.· Berið á andlitið og hreinsið af með volgu vatni.
Andlitsolía fyrir illa farna húð
Andlitsolía fyrir viðkvæma og veðurbitna húð
Hráefni:
· 5 dropar german chamomile ilmkjarnaolía · 5 dropar calendula ilmkjarnaolía · 5 dropar helichrysum ilmkjarnaolía · 5 dropar lavender ilmkjarnaolía · 1 msk jojoba olía · 1 msk macademía olía · 2 tsk sólblómaolía
Aðferð:· Blandið ilmkjarnaolíunum saman. · Blandið grunnolíunum saman við. · Hristið vel saman. · Látið standa á dimmum stað í 24 klst áður en olían er notuð. · Notist innan sex mánuða. · Berið 3-5 dropa á andlitið x2 á dag. · Hentar vel fyrir illa farna húð, veðurbarna, mjög þurra og viðkvæma
Góðir maskar fyrir venjulega og þurra húð.
Hunangsmaski:· 1/2 tsk rósarvatn (fæst í Jurtaapótekinu) · 1 tsk hunangBlandað saman og borið á andlitið og látið vera í 15-20 mínútur.
Hreinsið af með volgu vatni.
Ávaxtamaski:· 1 banani · 1 papaya · 1 acocadoAllt marið saman og látið vera á húðini í 20 mínútur.
Hreinsað af með volgu vatni.
Berið góða olíu á eftir.
Avacadomaski:· 1/2 avacado · sítrónusafiAvacado marið og nokkrum dropum af sítrónusafa blandað saman við.
Borið á andlitið og látið liggja á í 20 mínútur.
Gott að bera hnetuolíu eða olífuolía á andlitið, nudda henni inn í húðina.
Þurr húð og eldhúsráðin
Hreinsikem:· 1 eggjarauða · 1 tsk appelsínusafi (nýkreist) · 1 tsk olífuolía Nokkrir dropar af limesafa (nýkreist) · Sett á húðina 15 mínútum áður en þú ferð í bað eða sturtu um morguninn.
Maski:· 1 egg · 1 tsk hunang · 1/2 tsk olífuolía · Látið liggja á húðinni í 10-15 mínútur, hreinsið af með vatni.
Maskar fyrir venjulega og þurra húð.
Jógúrtmaski:
Hráefni:· 1 msk jógúrt við stofuhita· 1 msk hunang, hitað.
Aðferð· Blandað saman og látið liggja á andlitinu í 15 mínútur. · Fyrir mjög þurra húð má bæta við annari matskeið af hunangi. · Fyrir feita húð er hægt að setja safa úr lime í blönduna
Hunangsmaski:· Best að setja maskann á blauta húð. · Tekur klút og bleytir hann með volgu vatni og þvær andlitinu upp úr honum. · Síðan er hunang borið á andlitið og látið liggja á í 15-20 mínútur.· Þvoið síðan andlitið með volgu vatni og síðan með köldu til að loka svitaholunum.
Bananamaski:· Stappaðu 1/4 af bananan þar til hann er orðinn að mjúku kremi. · Borið á andlitið og látið liggja á í 15 mínútur.· Þvoið af með volgu vatni og síðan með köldu.
Avacado og gulrótarmaski:
Hráefni:· 1 avacadó· 1 gulrót· 1/2 bolli rjómi· 1 hrært egg· 3 msk hunang
Aðferð:· Avacadóið stappað, gulrótin soðin og stöppuð.· Blandað saman og borið á andlitið og háls og látið liggja á í 10 mínútur.
Andlitsmaskar úr eldhúsinu.
Grænn maski:· jógúrt og grænt te blandað saman.·
Hreinsandi maski sem er settur á húðinsa og nuddað með hringlaga hreyfingum inn í húðin. · Látið liggja á í nokkrar mínúrur og hreinsið með vatni.· Hentar vel fyrir viðkvæma og pirraða húð.
Hunangsmaski:· Hunang og malaðar möndlur og örlítil olía saman við.· Nærandi maski fyrir venjulega og þurra húð.
Mintumaski:· Jógúrt og smátt söxuð mintublöð.· Kælandi og róandi fyrir húðina.· Hentar sérstaklega vel fyrir viðkvæma húð
Basilmaski:· Jógúrt og smátt saxað basil.· Róandi fyrir húðina.
Fótanuddkrem
Hráefni:
- 1 1/2 tsk kókosolía
- 2 msk hafrar
- 2 msk sweet almond olía
- 1 tsk blandað krydd úr kryddhillunni
- eða 10 dropar ilmkjarnaolía eftir smekk, t.d. lavendur, jasmine, rose, patchouli eða ylang -ylang.
- Öllu blandað saman í mauk.
- Nuddið yfir fætur og látið liggja á í 20 mínútur.
- Hreinsið af
Fótaskrúbbur
Hráefni:
- Heitt vatn
- 2 msk matarsódi
- 1/4 bolli ólífuolía eða laxerolía
- 2 msk epla edik
- Setjið matarsódann í heitt vatn og hafið fæturnar í 15 mínútur.
- Þurrkið fæturnar og nuddið með blöndu af ólífuolíu og eplaedik
- Setjið sokka á fæturnar og sofið í þeim yfir nótt.
- Góða ólífuolia er hægt að bera á fæturnar eftir bað og sofa í sokkum yfir nótt.
- Maukaðir velþroskaðir bananar settir á húðina og látnir liggja á í 10 mínútur, hreinsið af.
- Fótabað í sítrónusafa í 10 mínútur.
- Daglegt fótabað í 15 mínútur í lok dagsins, þurrkið fætur og berið á blöndu af einni teskeið af vaselíni í safa af einni sítrónu.
Hráefni:
- 1 lítil gúrka
- 1/2 tsk hunang
- heitt vatn
- mild sápa t.d. neutrogena
- 1 msk maísmjöl
- Afhýðið gúrkuna og fræhreinsið.
- Sett í blandara og blandið hunangi saman við, sett í sérskál.
- Búið til mauk úr vatni, sápu og maísmjöli.
- Þvoðið hendurnar vandlega með maísmaukinu.
- Skolið hendurnar upp úr volgu vatni.
- Setjið gúrkusafann á rakar hendur og setjið plasthanska eða plastpoka á hendurnar.
- Setjið handklæði yfir plastið og látið vera í ca 30 mínútur.
- Hreinsið og þurrkið hendurnar og setjið handáburð á hendurnar.
Gott fyrir mjög þurra, veðurbarða og illa farna húð, má nota á hverjum degi 1-2 yfir daginn í nokkrar vikur. Ef ekki er hægt að koma því við þá allavega 3-4 yfir vikuna.
Þurrar hendur og eldhúsráðin
Olífuolíobað:
Fyllið skál af volgu vatni og setjið 4 msk af olífuolíu í vatnið.
Hafið hendurnar í vatninu í 10-15 mínútur.
Hreinsið hendurna með vatni og þurrkið.Berið handáburð á hendurnar.
Hægt að nota þetta fyrir fætur líka.
Vaselín fyrir nóttina:
Berið vaselín, AD-krem á hendurnar og sofið með þunna bómullahanska. Það sama er hægt að gera fyrir fætur og sofa þá í sokkum
.Aloe vera:
Fyrir þá sem eiga aloe vera plöntuna, er hægt að skera af jurtinni og nudda húðina með vökvanum úr plöntuninni
Olíur fyrir hendur:
Nuddið hnétuolíu eða kókosolíu á hendurnar og látið þorna.
Hunang fyrir hendurnar:
Bleytið hendurnar og hristið vatnið af en þurrkið ekki. Hunang borið á og látið liggja á í 5 mínútur. Hreinsið af með vatni og þurrkið.
Sykur og laxerolía:
Setjið eina teskeið af sykri í lófana og bætið við nokkrum dropnum af laxerolíu og sítrónusafa og nuddið hendurnar vel. Hreinsið með volgu vatni og þurrkið.
Haframaski fyrir hendur:
1/4 bolli hafrar, 1 msk vatn og eplaedik, hrært saman svo úr verði mauk og borið á hendurnar. Látið liggja á í 10 mínútur og hreinsið af með volgu vatni.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2009 | 00:36
ýmislegt
sem ég hef verið að gera að undanförnu
Heklað teppi
Húfa og vettlingar
2 þæfðar skálar
litlar kassa húfur
þæfðir vettlingar
stórir og svo barna-býflugna
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.2.2009 | 06:21
prjónuð leikföng ofl.
http://mochimochiland.com/shop/
Hér eru meðal annars þessi

http://www.designs-by-emily.com/dlg/cart/free.php
þvottapokar
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 06:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2009 | 05:58
nafn mitt
Fanny Margret
í Rúnaletri










http://www.sunnyway.com/runes/write_in_runes.html
á Arabísku
فني مارجريت
http://www.google.com/transliterate/arabic
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 06:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2009 | 04:49
Prjón ofl - uppskriftir
er rosalega flott og sniðug heimasíða, þar er margt að finna m.a. eftirfarandi
http://www.purlbee.com/mary-jane-slippers/ Rosalega fínar tátiljur
http://www.purlbee.com/wedding-washcloths/ einfaldir þvottapokar
http://www.purlbee.com/mollys-star-ornaments/ Skraut stjörnur
http://www.purlbee.com/apple-picking-tote/ Hin fínasta taska
Ég set svo fljótlega inn myndir af því sem ég hef verið að gera að undanförnu 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)









vdp
ansiva
lindape
polli
gloppa
rasan
rocksock
harpao
aettarmot09
helgai
sveitalubbi
hjartagull
saumakarfan
blogger
johannp
kjarninn
helgamargret
matarbitinn
hallaj
101isafjordur
solvgud
thorvaldsdottir
fiffi
bede88
gattin
magneak









